Leikir og úrslit
Smelltu hér fyrir upplýsingar um leiki og úrslit
Smelltu hér fyrir upplýsingar um röðun í verðlaunasæti.
08:50 - 11:57 Körfubolti 15–16 /17–18 ára
12:00 - 15:00 Körfubolti 11 - 12 ára
15:00 - 18:15 Körfubolti 13 - 14 ára
Lengd leikja er um 8 - 9 mínútur.
Aldurs- og kynjaflokkar
- 11 - 12 ára strákar
- 13 - 14 ára strákar
- 15 - 16 ára strákar
- 17 - 18 ára strákar
- 11 - 12 ára stelpur
- 13 - 14 ára stelpur
- 15 - 16 ára stelpur
- 17 - 18 ára stelpur
Keppnisfyrirkomulag / reglur
Spilað á eina körfu
3 leikmenn inná í hvoru liði - 2 varamenn leyfðir (ekki skylda).
Frjálsar skiptingar "handboltaskiptingar"
2 stig fást fyrir hverja skoraða körfu
Eftir skoraða körfu hjá liði A, fær lið B boltann, sóknarleikmaður B verður að byrja sókn fyrir utan merkta línu með því að "checka" boltann með sendingu eða rétta leikmanni liðs A boltann og fá hann aftur. Um leið og leikmaður B er kominn með boltann aftur þá hefst sókn.
Leikvöllur afmarkast af hliðarlínum, vegg undir körfunni og miðlínu. Ef stigið er á/útfyrir línu eða veggur snertur á hitt liðið innkast.
Innkast - boltinn skal checkaður með sendingu eða rétta andstæðing boltann og fá hann aftur beint á móti körfu líkt og við skoraðar körfur.
Leikurinn er 9 mínútur og klukkan er aldrei stöðvarður. Ef jafnt er þegar leiktíminn er liðinn tekur við framlenging sem lýkur með gullkörfu (fyrsta skoraða stig vinnur leikinn).
Búningar liðs skulu vera í sama lit. Ef mótshaldarar þurfa að aðgreina lið þá má setja annað liðið í vesti eða annað sambærilegt til að skilja liðin að.
Leikmenn skulu vera í innanhúss skóm (skór þurfa að vera hreinir).
Víti eru eingöngu tekin þegar brotið er á leikmanna í skothreyfingu eða sóknarlið er komið í "bónus". "Bónus" myndast þegar lið fær dæmda á sig sína sjöttu villu.
Ef lið A er í sókn og lið B nær boltanum, stelur honum eða tekur frákast, þá þarf lið B að fara út fyrir merkta línu áður en það má sækja að körfu og skora.
Spilað er með boltastærð 6 nema í 15-16 og 17-18 ára drengjabolta þar sem spilað er með boltastærð 7.
Farið verður eftir almennum körfuboltareglum sem dómari leiks aðlagar eftir getustigi leikmanna í hverjum leik fyrir sig.
Miðað er við að hver sókn megi ekki taka nema í kringum 15 sekúndur er það dómarans að dæma og telja það. Einnig ef leikmaður er uppvísa að því að vera vísvitandi að tefja leikinn liði sínu til hagsbóta er því refsað með vítaskoti fyrir andstæðing.
Dómara er heimilt að vísa leikmanni sem gerir alvarleg óíþróttamannsleg brot af velli og meina honum frekari þátttöku í tilteknum leik.
- Allir leikir eru spilaðir á eina körfu (3:3)
- Leiktími er um 9 mín.
- Ef leikur hefst eftir að klukka er sett af stað, styttist leikurinn sem því nemur.
- Aðeins 3 leikmenn eru inn á, en mega hafa 2 varamenn
- Hver leikmaður má einungis leika með einu liði.
- Sé lið uppvíst að spila með ólöglegan leikmann tapar liðið viðkomandi leik 20 - 0 og getur viðkomandi lið og leikmaður ekki unnið til verðlauna.
- Ef lið mætir ekki til leiks innan fimm mínútna þá tapast leikurinn 20-0.
Monrad kerfi
Á mótinu er leikið eftir svokölluðu Monrad kerfi sem gengur út á sjálfvirka geturöðun. Í fyrstu umferð er liðum raðað saman handahófskennt og spila lið tiltekinn fjölda leikja á hverju móti.
Leikið er eftir reglum Körfuknattleikssambands Íslands (KKÍ).
Körfuboltafjör fyrir öll
Á laugardeginum mun KKÍ og vera með körfuboltafjör, í íþróttahúsinu frá kl. 11:00-13:00. Öll eru velkomin að koma og prufa og leika sér.