Fara á efnissvæði

Öllum flokkum

Fréttir

Öllum flokkum

02. febrúar 2021

Birta hjá ÍBR: Við viljum fá ofbeldið upp á yfirborðið

„Fatlað íþróttafólk eru oftar þolendur kynferðislegs ofbeldis og áreitni en aðrir. Líka hinsegin og kynsegin íþróttafólk, fólk af erlendum uppruna og afreksíþróttafólk,“ segir Birta Björnsdóttir hjá ÍBR. Hún verður með erindi um ofbeldi og áreitni á RIG-ráðstefnu fimmtudaginn 4. febrúar.

29. janúar 2021

Allir geta tekið þátt í að móta nýja Æskulýðsstefnu

Drög að nýrri Æskulýðsstefnu hafa verið birt í samráðsgátt stjórnvalda. Allir geta tekið þátt í mótun stefnunnar. Tilefni stefnumótunarinnar er aukin krafa um gæði og öryggi í skipulögðu félags- og tómstundastarfi. UMFÍ mælir með að sem flestir sambandsaðilar taki þátt í mótun hennar.

29. janúar 2021

Opnað fyrir umsóknir um endurgreiðslu íþróttafélaga

Vinnumálastofnun hefur opnað fyrir umsóknir vegna endurgreiðslu launakostnaðar og verktakagreiðslna á tímum kórónuveirufaraldurs. UMFÍ hvetur sambandsaðila og aðildarfélög þeirra til að kynna sér málið og nýta sér úrræðið enda er markmið endurgreiðslunnar að draga úr röskun á íþróttastarfi.

27. janúar 2021

Opið fyrir umsóknir í Ungmennabúðir UMFÍ á Laugarvatni

Opnað hefur verið fyrir umsóknir um dvöl nemenda 9. bekkjar grunnskóla í Ungmennabúðum UMFÍ á Laugarvatni fyrir skólaárið 2021-2022. Markmiðið með dvöl þar er að styrkja félagsfærni ungmenna, efla vitund þeirra fyrir umhverfi sínu og styðja heilbrigðan lífsstíl.

26. janúar 2021

Sigrún Sjöfn: Íþrótta- og tómstundastyrkir fyrir börn sem geta ekki stundað áhugamál sitt

„Ég er mjög spennt fyrir þessu verkefni og bind vonir við og vil trúa að það komi að notum fyrir efnaminni fjölskyldur,“ segir körfuboltakonan Sigrún Sjöfn Ámundadóttir, sem ráðin hefur verið til að hafa umsjón með sérstökum íþrótta- og tómstundastyrkjum sem börn af efnaminni heimilum eiga rétt á.

25. janúar 2021

Sportabler og Nóri sameinast í einstökum hugbúnaði

Nórakerfið og Sportabler hafa verið sameinuð í einu fyrirtæki. „Við höfum verið að færa stjórnendum íþróttafélaganna þessar fréttir og fengið gríðarlega góð viðbrögð. Stjórnendur félaganna eru líka mjög sáttir við að fá eitt gott kerfi,“ segir Markús Máni, framkvæmdastjóri Sportabler.

22. janúar 2021

Jóhann Steinar tekur við sem varaformaður UMFÍ

„Við höfum frá upphafi skipt með okkur verkum í stjórninni og vinnum  afar vel saman. Þegar ný stjórn tók við haustið 2019 ákváðum við Jóhann að hafa sætaskipti um mitt tímabil,“ segir Ragnheiður Högnadóttir fráfarandi varaformaður UMFÍ. Hún hefur nú sætaskipti við Jóhann Steinar Ingimundarson.

21. janúar 2021

Guðríður hjá HSK: Gott að styðja við félögin

„Við erum mjög ánægð að geta greitt arðinn út til aðildarfélaganna. Þetta sýnir að íþróttahreyfingin er vel rekin og gott að nýta hann til að styðja við félögin,“ segir Guðríður Aadnegard, formaður HSK. Stjórn sambandsins greiðir aðildarfélögum HSK 2,2 milljónir króna aukalega.

18. janúar 2021

Styrkir til æskulýðsfélaga vegna áhrifa COVID-19

Stjórnvöld ætla að úthluta 50 milljónum króna til sértækra aðgerða til að að styðja við starf æskulýðsfélaga sem raskast hefur verulega vegna afleiðinga sóttvarnaráðstafana COVID-19 frá 1. júní 2020. Búið er að opna fyrir umsóknir um styrki vegna tekjutaps æskulýðsfélaga.