Fara á efnissvæði

Allar fréttir

Fréttir

Allar fréttir

02. apríl 2020

Kristrún er nýr framkvæmdastjóri Aftureldingar

Kristrún Kristjánsdóttir hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Ungmennafélagsins Aftureldingar í stað Jóns Júlíusar Karlssonar sem mun í sumar taka við starfi framkvæmdastjóra Ungmennafélags Grindavíkur.

31. mars 2020

Munið að sækja um í sjóðum UMFÍ

Vakin er athygli á að nú styttist aldeilis í að frestur til að sækja um í tveimur sjóðum UMFÍ rennur út. Frestur til að sækja um í Fræðslu- og verkefnasjóð UMFÍ rennur út á morgun, 1. apríl. Enn er hægt að senda inn umsóknir í Umhverfissjóð UMFÍ en frestur til þess rennur út 15. apríl næstkomandi.

27. mars 2020

Við eigum öll að hlýða Víði!

„Við höfum fengið vísbendingar um að íþróttafólk félaga sé að stunda íþróttaæfingar úti þrátt fyrir strangt samkomubann. Það er ekki til fyrirmyndar. segir Auður Inga Þorsteinsdóttir, framkvæmdastjóri UMFÍ.

26. mars 2020

Jónas hjá Völsungi:  Íþróttafélögin haldi iðkendum virkum

„Mikilvægasta hlutverk okkar er að halda iðkendum við efnið og í starfinu,“ segir Jónas  Halldór Friðriksson, framkvæmdastjóri Völsungs á Húsavík. Félagið hefur fellt niður 100 skipulagðar æfingar í viku og hefur það áhrif á 600 iðkendur í skipulögðu starfi. Hann segir mikilvægt að halda áfram.

23. mars 2020

Formaður UMFÍ: Hlúum hvert að öðru og gætum þess að öðrum líði vel

„Óvissan er vissulega mikil. En við munum ná árangri þegar við erum samtaka. Um leið getum við látið okkur hlakka til að mæta aftur til leiks hjá félögum okkar um allt land þegar birtir til. Það er ungmennafélagsandinn,“ skrifar Haukur Valtýsson, formaður UMFÍ til félagsmanna.

23. mars 2020

Ríkið styrkir íþróttahreyfinguna

„Það er mikilvægt að þessir fjármunir komist í umferð sem allra fyrst, svo afkoma fólks og félaga sem starfa á þessum sviðum verði betur tryggð,“ segir Lilja Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra.

23. mars 2020

Íþróttafélög geta nýtt hlutagreiðslur

„Íþrótta- og ungmennafélög gegna veigamiklu hlutverki í íslensku samfélagi,“ segir Ásmundur Einar Daðason, félags- og barnamálaráðherra. Samkvæmt frumvarpi hans eiga starfsmenn íþróttafélaga rétt til greiðslu bóta samhliða minnkuðu starfshlutfalli atvinnurekanda vegna COVID-19.

22. mars 2020

Einar Haraldsson: Mikilvægasta að huga að börnunum og heilsu allra

Sambandsaðilar UMFÍ og aðildarfélög standa frammi fyrir ýmis konar áskorunum í starfi sínu til að draga úr útbreiðslu COVID-19 faraldursins. En hvernig er brugðist við? Hér segja nokkrir stjórnendur í íþróttahreyfingunni frá því hvað félögin eru að gera.

22. mars 2020

Skarphéðinn hjá ÍA: Hvetjum iðkendur til að vera duglega

Sambandsaðilar UMFÍ og aðildarfélög standa frammi fyrir ýmis konar áskorunum í starfi sínu til að draga úr útbreiðslu COVID-19 faraldursins. En hvernig er brugðist við? Hér segir Skarphéðinn Magnússon, yfirþjálfari yngriflokka Knattspyrnufélags ÍA, hvernig þar á bæ er brugðist við.