Þúsundir skemmta sér í blíðunni á Unglingalandsmóti
![](/media/ykebwoya/_mg_5095.jpg?width=400&height=400&v=1d9c6d9d786aa30 1x)
„Blússandi gangur er í öllu og gestir Unglingalandsmótsins glaðir,“ segir Auður Inga Þorsteinsdóttir, framkvæmdastjóri UMFÍ. Unglingalandsmót UMFÍ hófst á Sauðárkróki í gær og stendur alla verslunarmannahelgina. Þátttakendur eru rúmlega þúsund á aldrinum 11 til 18 ára, foreldrar þeirra, forráðafólk og systkini sem leika sér saman og keppa í fjölda greina í blíðskapar veðri á Króknum. Ætla má að um fjögur þúsund gestir séu á mótinu.
Um 18 keppnisgreinar eru í boði á mótinu og fjöldi annarra greina sem allir þátttakendur geta komið og prófað og leikið sér í.
Á meðal greinanna sem mótsgestir á öllum aldri geta komið og tekið þátt í án þess að skrá sig sérstaklega eru opinn flokkur í bogfimi, pílukast og frisbígolf.
Mótið verður sett í kvöld og þar koma m.a. fram fótafimi fótboltasnillingurinn Andrew Henderson, landsliðsfólk í fimleikum og margir fleiri sem verða með sýningar og vinnubúðir alla helgina.
![](/media/ca3jcyya/_mg_5043.jpg?width=524&height=524&v=1d9c6d9aef05850 1x)
![](/media/pg5j4c3f/_mg_5122.jpg?width=524&height=524&v=1d9c6d9d7a49270 1x)
![](/media/002bctlx/5o6a2893.jpg?width=524&height=524&v=1d9c6d99d4f67d0 1x)
![](/media/tfrihkgo/5o6a2953.jpg?width=524&height=524&v=1d9c6d99d089ad0 1x)
![](/media/vn3a2zuo/5o6a2926.jpg?width=524&height=524&v=1d9c6d99d37e830 1x)
![](/media/mt2ffdm0/5o6a2839.jpg?width=524&height=524&v=1d9c6d9ae8d29b0 1x)