Öllum flokkum
![](/media/2hsnk5af/img_6308.jpg?width=530&height=350&v=1d9a9ce97399230 1x)
30. júní 2019
Landsmóti UMFÍ 50+ lokið í Neskaupstað
Landsmóti UMFÍ 50+ lauk í Neskaupstað um tvöleytið í dag með klassísku stígvélakasti. Gunnar Gunnarsson, formaður UÍA, segir marga þátttakendur á mótinu hafa kynnst nýjum íþróttagreinum á mótinu sem það langi til að æfa. Það skili sér í virkni og aukinni hreyfingu fólks.
![](/media/1nhko3wp/50plus_0042_web.jpg?width=530&height=350&v=1d9a9ce7c9afef0 1x)
29. júní 2019
Crossnet spilað í fyrsta sinn á Íslandi
„Crossnet er eins og blak spilað á litlu neti í kross með fjóra velli þar sem einn leikmaður er á hverjum. Það er spilað með blakbolta og blaksnertingum,“ segir Sigríður Þrúða Þórarinsdóttir, blakspilari í Neskaupstað. Greinin verður kynnt í fyrsta sinn á Landsmóti UMFÍ 50+ í dag.
![](/media/zzkhv4hq/img_5665.jpg?width=530&height=350&v=1d9a9ce805ac610 1x)
29. júní 2019
Vill gera hlutverk sjálfboðaliða eftirsóknarvert
„Við eigum marga og góða sjálfboðaliða hjá UMFÍ, trygga og trúa ungmennafélaga sem lyfta starfinu upp. Sjálfboðaliði leggur ótrúlega mikið af mörkum til að bæta heiminn. Sjálfboðaliði hugsar ekki um sig. Hann hugsar um aðra,“ segir Haukur Valtýsson, formaður UMFÍ.
![](/media/w4okiaki/img_5372.jpg?width=530&height=350&v=1d9a9ce84170ac0 1x)
29. júní 2019
Íþróttahetja dæmir í kúluvarpi
Íþróttahetjan Hreinn Halldórsson er einn af dómurunum á Landsmóti UMFÍ 50+ sem fram fer í Neskaupstað um helgina. Á föstudag dæmdi hann í kúluvarpi en fleiri kastgreinum á laugardag. Frjálsar íþróttir eru með vinsælustu greinunum á mótinu og keppendur margir.
![](/media/0ddlpj2a/img_5543.jpg?width=530&height=350&v=1d9a9ce87f667d0 1x)
29. júní 2019
Lét ekki handleggsbrot stöðva sig í kastgreinum
„Það þýðir ekkert annað en að vera jákvæður og taka þátt. Veðrið er líka búið að vera svo gott að maður getur ekki látið handleggsbrot trufla sig,“ segir Harpa Hlín Jónsdóttir frá Ólafsfirði. Harpa brotnaði á hægri handlegg og er rétthent og þurfti því að nota vinstri hendina í kastgreinum.
![](/media/o5ff2kt4/50plus_0832.jpg?width=530&height=350&v=1d9a9ce8be7ed50 1x)
29. júní 2019
Sigrún sigraði í pönnukökubakstri
Sigrún Steinsdóttir frá Dölum í Fáskrúðsfirði fór í dag með sigur af hólmi í keppni í pönnukökubakstri á Landsmóti UMFÍ 50+ sem fram fer í Neskaupstað um helgina. Þar með velti hún Ingibjörgu Helgu Guðmundsdóttur frá Selfossi úr sessi.
![](/media/f1ejds02/img_5165.png?width=530&height=350&v=1d9a9ce71a47260 1x)
28. júní 2019
Besta veðrið á Landsmóti UMFÍ 50+ í Neskaupstað
„Þetta er besta veðrið hér, suðvestan, skínandi sól og léttur andvari. Þegar ég fór að hita upp fyrir keppni í sundlauginni áðan sýndi mælirinn 23 gráður,“ segir Jón Hlífar Aðalsteinsson, íbúi í Neskaupstað og þátttakandi á Landsmóti UMFÍ 50+ sem fram fer í Neskaupstað um helgina.
![](/media/ukqpcsni/1e1a4745.jpg?width=530&height=350&v=1d9a9ce757c2e50 1x)
28. júní 2019
Lið Sparisjóðs Austfjarða fyrst til að falla úr keppni - ætla að snúa aftur
Lið Sparisjóðs Austurfjarða náði þeim vafasama áfanga að verða fyrsta liðið til að falla úr leik á Landsmóti UMFÍ 50+ sem haldið er í Neskaupstað um helgina. Liðið er ekki af baki dottið og sér fram á glæsta sigra síðar í boccia.
![](/media/aa2gffih/1e1a5042.jpg?width=530&height=350&v=1d9a9ce791ad8e0 1x)
28. júní 2019
Gott að stinga sér í sjóinn
Allt er í boði á Landsmóti UMFÍ 50+ í Neskaupstað. Keppnisstjórinn Þorbjörg Ólöf Jónsdóttir bauð þátttakendum mótsins í dag að skella sér í sjósund um eittleytið í dag. Nokkrir þátttakendur þáðu boðið.