Öllum flokkum

24. mars 2021
Stöndum saman gegn COVID 19
Þjálfarar íþrótta- og ungmennafélaga lærðu margt nýtt í fyrra. Nú er mikilvægt að nýta þekkinguna, segir Auður Inga Þorsteinsdóttir, framkvæmdastjóri UMFÍ. Hún hvetur til samstöðu því mörg börn séu smituð og því ekki gott að fara á svig við reglur. Við það sé hætta á að smitum fjölgi.

18. mars 2021
Rafíþróttir á Unglingalandsmóti UMFÍ
Keppt verður í nokkrum rafíþróttaleikjum á Unglingalandsmóti UMFÍ sem verður haldið á Selfossi um verslunarmannahelgina. Hallbera Eiríksdóttir hjá UMFÍ segir það frábæra viðbót og auka fjölbreytni mótsins. Rætt er við Hallberu í fylgiriti Fréttablaðsins um rafíþróttir.

18. mars 2021
Ólafur sæmdur starfsmerki UMFÍ
Ólafur Þór Eyjólfsson var endurkjörinn formaður Ungmennafélags Njarðvíkur (UMFN) á aðalfundi þess sem haldinn var í Njarðvík í gærkvöldi. Ólafur var sæmdur starfsmerki UMFÍ í tilefni dagsins. Stjórn UMFN var líka endurkjörin með örlitlum breytingum.

17. mars 2021
Mörg umhverfisverkefni fá styrk hjá UMFÍ
Opnað hefur verið fyrir umsóknir í Umhverfissjóð UMFÍ. Tilgangur sjóðsins er að styrkja umhverfisverkefni aðildarfélaga og einstaklinga innan ungmennafélagshreyfingarinnar. Sjóðurinn styrkir ýmis konar umhverfisverkefni. Þar á meðal merkingar á göngu- og hjólastígum, gróðursetningu og margt fleira.

15. mars 2021
Stefnumót UMFÍ
UMFÍ vinnur nú að endurnýjun á stefnu sambandsins, sem ætlunin er að kynna á Sambandsþingi UMFÍ í október 2021.

12. mars 2021
Hvetja aðildarfélög til að virða útgefin aldurstakmörk í rafíþróttum
ÍSÍ og UMFÍ hvetja aðildarfélög sín að virða útgefin aldurstakmörk þeirra leikja sem spilaðir eru á vettvangi þeirra auk þess að tryggja að inntak leikjanna sé í samræmi við siðareglur og gildi viðkomandi félags og samtaka, að því er segir í sameiginlegri tilkynningu ÍSÍ og UMFÍ um rafíþróttir.

08. mars 2021
Helga Guðrún fyrst kvenna formaður UMFÍ
„Mér fannst skemmtileg áskorun að bjóða mig fram sem formaður UMFÍ. Ég var ekkert að velta kynhlutverkunum fyrir mér, en vissi að ég var í brauðryðjandahlutverki,“ segir Helga Guðrún Guðjónsdóttir, sem var fyrst kvenna til að gegna embætti formanns UMFÍ. Í dag er Alþjóðlegur baráttudagur kvenna.

05. mars 2021
Sonja Lind er nýr sambandsstjóri UMSB
Sonja Lind Estrajher Eyglóardóttir var kosin sambandsstjóri UMSB á sambandsþingi í Borgarnesi í gær. Hún tekur við sætinu af Braga Þór Svavarssyni, skólameistara Menntaskóla Borgarfjarðar. Fleiri breytingar urðu á þinginu því Rakel Dögg Sigurgeirsdóttir er ritari UMSB.

05. mars 2021
Flemming og Guðjón heiðraðir með gullmerki UMFÍ
Þeir Flemming Jessen og Guðjón Guðmundsson voru á sambandsþingi Ungmennasambands Borgarfjarðar (UMSB) báðir heiðraðir fyrir störf sín fyrir ungmennafélagshreyfinguna með gullmerki UMFÍ. Sigríður Bjarnadóttir og Páll Snær Brynjarsson fengu á sama tíma starfsmerki UMFÍ fyrir störf sín.