Fara á efnissvæði

Unglingalandsmót

Algengar spurningar

Svör við algengum spurningum

  • Þegar þú kemur í Borgarnes þá er það fyrsta sem þú gerir að koma við í þjónustumiðstöð mótsins og ná í armbandið þitt. Þjónustumiðstöðin er í Hjálmakletti/Menntaskólanum sem er við hliðina á NETTÓ. 

    Allir þátttakendur 11 - 18 ára á Unglingalandsmóti fá armband sem þeir þurfa að hafa alla mótsdagana. Þetta armband veitir þeim aðgang að öllum keppnisgreinum sem þau hafa skráð sig í og einnig aðgang að allri dagskrá mótsins. Yngri systkini, 10 ára og yngri geta einnig fengið armband sem ekkert kosta og eru í raun bara til að þau séu með í veislunni.

    Ef armbandið slitnar á meðan mótinu stendur þá kemur þú með það í þjónustumiðstöðina og færð nýtt armband afhent.

  • Ert þú að velta því fyrir þér hvort yngri systkini geti komið með?

    Unglingalandsmót UMFÍ er vímulaus íþrótta- og fjölskylduhátíð. Öll ungmenni 11–18 ára geta tekið þátt í íþróttagreinum mótsins. Árið gildir.

    Börn yngri en 10 ára fá líka fjölmörg verkefni eins og foreldrarnir. Það verður líf og fjör á mótinu frá morgni til kvölds alla mótsdagana. Hér eru nokkur sýnishorn af því sem boðið verður uppá fyrir þau sem eru 10 ára og yngri: Fótboltafjör, fótboltapanna, frjálsíþróttaleikar, sundleikar, hæfileikasvið, kvöldvökur, tónleikar og margt fleira. Öll afþreying er opin og kostar ekki krónu.

    Börn í fylgd fullorðinna á mótinu greiða ekkert þátttökugjald. Ekki er gert ráð fyrir því að börn og ungmenni yngri en 18 ára séu á eigin vegum á mótinu.

  • Íþróttasvæðið í Borgarnesi er í hjarta bæjarins. Tjaldsvæðið er staðsett á Kárastöðum sem er aðeins fyrir utan bæinn. Auðvitað bönnum við ekki bíla á mótinu en takmarkaður fjöldi bílastæða eru í nágrenni við íþróttasvæðið. Við værum þakklát ef þeir yrðu notaðir sem minnst.

  • Dagskrá mótsins er í vinnslu og mun eflaust breytast eitthvað þar til flautað verður til leiks. Hún verður afar fjölbreytt og allir munu örugglega finna eitthvað við sitt hæfi.

    Íþróttakeppnin er í aðalhlutverki en samhliða henni eru fjölmargir viðburðir sem vert er að veita athygli. Þetta eru viðburðir fyrir allan aldur og eru allir velkomnir. Tónleikar eru öll kvöldin í stóru tjaldi á tjaldsvæðinu og síðan minni viðburðir út um allt. 

  • Sumir geta ekki verið án dýranna sinna. Við hvetjum hins vegar ekki bændur til að taka með bústofna sína en minni spámenn eru velkomnir. Hundar skulu ætíð vera í bandi.  

  • Það er einfalt mál að komast í Borgarnes.

    Hér eru nokkrar vegalengdir:

    • Akureyri 314 km.
    • Egilsstaðir 561 km.
    • Höfn 516 km.
    • Ísafjörður 300 km. 
    • Reykjavík 74 km.
    • Selfoss 142 km.
  • Nei, ekki í öllum greinum. Sumar eru fyrir ákveðna aldursflokka. Mikilvægt er að skokða aldursflokka greinanna. Svo er líka ljóst að enginn getur keppt í öllum greinum mótsins. Þær eru of margar og einhverjar fara fram á sama tíma.

    Að þessu sögðu þá er bara eitt keppnisgjald og þeir sem það greiða geta valið sér keppnisgreinar að vild í samræmi við aldursflokka viðkomandi greinar.

  • Hraðbankar eru í Arion banka og við NETTÓ sem eru ekki langt frá íþróttasvæðinu.

  • Liðakeppni er í nokkrum greinum. Við skráningu í liðakeppni þarf hver og einn að ganga frá sinni skráningu. Sá sem skráir sig fyrst þarf að stofna liðið. Þegar búið er að stofna lið geta aðrir þátttakendur skráð/valið lið. Ekki er hægt að ganga frá skráningu fyrir heilt lið nema með því að senda tölvupóst á netfangið umfi@umfi.is.  

    Ertu ekki með full skipað lið?
    Ef það eru t.d. tveir vinir sem skrá sig til leiks en vantar fleiri til þess að fullskipa liðið. Þá er heppilegast að finna nafn á liðið og skrá nafnið á liðinu. Við hjá UMFÍ munum svo sjá um að koma viðkomandi saman í lið. 

    Vantar þig lið?
    Ef einstaklingur hefur áhuga á að vera með í liði er heppilegast að skrá sig til leiks og skrifa inn "vantar lið" við liðskráninguna. Við hjá UMFÍ röðum viðkomandi svo í lið.

  • Það getur verið ruglingslegt og flókið að skilja allt tal um íþróttahérað, sambandsaðila og félög. UMFÍ er landssamband fyrir íþrótta- og ungmennafélög um allt land. Sambandsaðilar UMFÍ eru 25 talsins sem skiptast í 24 íþróttahéruð og eitt ungmennafélag með beina aðild. 


    Dæmi:
    Jón býr í Reykjavík og æfir körfubolta með Val. Íþróttafélagið Valur er félag undir Íþróttabandalagi Reykjavíkur (ÍBR) sem er sambandsaðili UMFÍ. Jón tilheyrir því ÍBR á Unglingalandsmótinu.

    Gunna æfir frjálsar með Skallagrími. Skallagrímur er aðildarfélag Ungmennasambands Borgarfjarðar (UMSB), sem er sambandsaðili UMFÍ. Gunna tilheyrir því UMSB á mótinu. 

    Hvaða sambandsaðila tilheyrir þú?
    Hér er að finna lista yfir landshluta og íþróttahéruð. 

    Höfuðborgarsvæðið

    • UMSK – Ungmennasamband Kjalarnesþings
    • V – Ungmennafélagið Vesturhlíð (félag með beina aðild)
    • ÍBR – Íþróttabandalag Reykjavíkur
    • ÍBH - Íþróttabandalag Hafnarfjarðar

    Vesturland

    • HSH – Héraðssamband Snæfellsness og Hnappadalssýslu
    • UDN – Ungmennasamband Dalamanna og N Breiðfirðinga
    • UMSB – Ungmennasamband Borgarfjarðar
    • USAH – Ungmennasamband Austur Húnvetninga
    • USVH – Ungmennasamband Vestur Húnvetninga
    • ÍA – Íþróttabandalag Akraness

    Vestfirðir

    • HSS – Héraðssamband Strandamanna
    • HHF – Héraðssambandið Hrafnaflóki
    • HSB- Héraðssamband Bolungarvíkur
    • HSV – Héraðssamband Vestfirðinga

    Norðurland

    • HSÞ – Héraðssamband Þingeyinga
    • UÍF – Ungmanna- og Íþróttasamband Fjallabyggðar
    • UMSE – Ungmennasamband Eyjafjarðar
    • UMSS – Ungmennasamband Skagafjarðar
    • ÍBA – Íþróttabandalag Akureyrar

    Austurland

    • UÍA – Ungmenna- og Íþróttasamband Austurlands

    Suðurland

    • HSK – Héraðssambandið Skarphéðinn
    • USÚ – Ungmennasambandið Úlfljótur
    • USVS – Ungmennasamband Vestur Skaftafellssýslu

    Suðurnes

    • ÍRB - Íþróttabandalag Reykjanesbæjar
    • ÍS - Íþróttabandalag Suðurnesja
  • Mótshaldarar verða með veitingasölu á tjaldsvæðinu, á mótssvæðinu og í Grunnskólanum í Borgarnesi sem er fyrir ofan aðal íþróttasvæðið.

    Einnig eru fjölmargir veitingastaðir í Borgarnesi. Góðar matvöruverslanir eins og NETTÓ eru einnig í Borgarnesi þannig að þá má alltaf fá eitthvað gott til að skella á grillið. 

  • Unglingalandsmót UMFÍ í Borgarnesi 2024 er samstarfsverkefni UMFÍ, UMSB og Borgarbyggðar. 

  • Mótssetning fer fram á íþróttavellinum í Borgarnesi og hefst kl. 20:00 á föstudeginum.
    Allir þátttakendur eiga að taka þátt í mótssetningunni og ganga þeir inn á mótssvæðið í skrúðgöngu með sínu íþróttahéraði í upphafi setningarinnar.

    Jóhann Steinar Ingimundarson, formaður UMFÍ flytur stutt ávarp og setur mótið. Landsmóts eldurinn verður tendraður og hátíðarfáni UMFÍ dreginn upp. Fimleikafólk frá Fimleikasambandi Íslands verður með sýningu og tónlistarmaðurinn Jón Jónsson flytur nokkur lög. Hlökkum til að sjá þig! 

  • Að lokinni kvöldvöku á sunnudagskvöldinu er mótinu er formlega slitið á tjaldsvæðinu. Lokaatriðið er heljarinnar flott flugeldasýning.

  • Óskilamunum verður safnað saman í þjónustumiðstöð mótsins. Að loknu móti verður hægt að senda póst á netfangið umsb@umsb.is.

  • Það verður fjöldi ruslatunna um allt mótssvæðið. Hjálpaðu okkur að halda svæðinu snyrtilegu og henda rusli í tunnurnar. Við munum flokka eftir ákveðnu kerfi en upplýsingar um það verða á mótsstað.

    Umgengni sýnir innri mann er gott máltæki sem mótsgestir ættu að temja sér.

  • Salerni eru á tjaldsvæðinu. Þau eru einnig að finna í íþróttamannvirkjum og á keppnisstöðum mótsins. Svo eru þau að sjálfsögðu á veitingastöðum og í verslunum um allan bæ.

  • Fyrir minni meiðsli er hægt að finna sjúkrakassa með plástrum og þess háttar í þjónustumiðstöð mótsins. Á tjaldsvæðinu er björgunarsveitarfólk með sólarhringsvakt og þangað er alltaf hægt að leita. Ef meiðsli eru hinsvegar alvarleg skal hringja í 112.

    Apótek Vesturlands, Borgarnesi:

    • Fimmtudagur    10:00-18:00
    • Föstudagur    10:00-18:00
    • Laugardagur    10:00-14:00
    • Sunnudagur    12:00-14:00
    • Mánudagur    12:00-14:00

    Lyfja Borgarnesi:

    • Fimmtudagur 10:00-18:00
    • Föstudagur    10:00-18:00 
    • Laugardagur    10:00-16:00
  • Það eru um 450 sjálfboðaliðar sem koma að undirbúningi og framkvæmd mótsins. Það eru því miklar líkur á því að það verði sjálfboðaliði sem þú mætir í hinum ýmsu hlutverkum á mótinu. Sendu þeim bros og þakklæti fyrir að leggja sitt af mörkum við að gera mótið þitt að ánægjulegri upplifun.

  • Opnað var fyrir skráningu 2. júlí og stendur hún til kl. 12:00 þann 29. júlí. 

    Þátttakendur greiða eitt þátttökugjald, 9.400 kr. óháð því hvað þeir taka þátt í mörgum keppnisgreinum. Gjaldið þarf að greiða rafrænt við skráningu á mótið. Aðeins er greitt fyrir þátttakendur 11 – 18 ára. Frítt er fyrir systkini og foreldra. 

    Eftir að skráningarfresti lýkur er ekki hægt að skrá sig rafrænt né tryggja þátttöku í öllum greinum. Hins vegar munum við gera okkar besta til að allir geti tekið þátt. Sendið póst á umfi@umfi.is.

    Við hvetjum þátttakendur til þess að skrá sig tímanlega. 

    SKRÁ MIG Á UNGLINGALANDSMÓT 2024

  • Í Borgarbyggð er að finna nokkrar góðar sundlaugar. Skráðir þátttakendur fá frítt í sund með því að framvísa armbandi mótsins í Sundlaug Borgarness, Kleppjárnsreykjum og Varmalandi.

  • Strætó ekur frá tjaldsvæðinu og að aðal keppnissvæðinu í hjarta Borgarness alla mótsdagana.
    Alla daga frá tjaldsvæði kl. 8:30 og fram yfir síðustu keppnisgrein.

  • Við hvetjum mótsgesti til að gista á tjaldsvæði mótsins sem er staðsett á Kárastöðum rétt utan við Borgarnes. Tjaldsvæðið er sérstaklega útbúið fyrir Unglingalandsmótið og er gjaldfrjálst fyrir gesti mótsins. Þeir sem þess óska geta fengið aðgang að rafmagni fyrir kr. 5.000.- fyrir alla helgina.
     
    Sérstakar tjaldbúðareglur gilda á svæðinu. Tjaldsvæðið opnar kl. 15:00 miðvikudaginn 31. júlí. Mótshaldarar minna tjaldsvæðagesti að vera með breyti- og millistykki til að tengjast rafmagninu. 

    Björgunarsveitarfólk stendur vaktina á tjaldsvæðinu allan sólarhringinn til að gæta öryggis tjaldbúðagesta.

    Snyrtingar og rennandi vatn eru á tjaldsvæðinu og eru mótsgestir beðnir að ganga vel um.

    Auk þess bendum við á almennt tjaldsvæði í Borgarnesi og svo eru önnur frábær tjaldsvæði víða í Borgarbyggð.

  • Mótshaldari leggur til tjaldsvæði fyrir keppenda- og fjölskyldubúðir á mótinu. Á því svæði tjalda aðeins þeir sem eru á vegum þátttökuliða mótsins. Gjald fyrir dvöl á tjaldsvæðinu er kr. 5.000.- og er aðgangur að rafmagni innifalið í því verði. Þegar greitt hefur verið fyrir aðgang að tjaldsvæðinu fær viðkomandi sérstakan límmiða sem á að setja á framrúðu bifreiðar. Óskað er eftir að tjaldbúðagestir fari sparlega með rafmagn.

    • Ekki má hlaða rafmagnsbíla í rafmagnskerfi tjaldsvæðisins. Kerfið þolir ekki það álag og slær út. Sá eða sú sem uppvís verður að misnotkun á rafmagnskerfinu þarf að greiða fyrir útkall viðgerðarfólks og þann skaða sem af þessu hlýst.
    • Öll umferð ökutækja á og við tjaldsvæði er bönnuð á tímabilinu kl. 24:00–07:00 nema með sérstakri heimild eftirlitsfólks.
    • Öðrum en tjaldbúðagestum er ekki hleypt inn í tjaldbúðirnar eftir kl. 24:00.
    • Kyrrð skal vera komin á í tjaldbúðum kl. 00:30.
    • Brýnt er ökumenn fari mjög varlega á tjaldsvæðinu og mælst er til þess að bílar séu sem minnst notaðir.
    • Allar eigur gesta eru á ábyrgð þeirra í tjaldbúðunum.
    • Brýnt er fyrir öllum að setja sorp í þar til gerð ílát á tjaldsvæðinu.
    • Hundaeigendur verða að hafa hunda sína í bandi og sjá um að þrífa eftir þá.
    • Gæsla verður á tjaldsvæðinu allan sólarhringinn meðan Unglingalandsmótið stendur yfir.
    • Öll neysla vímuefna er að sjálfsögðu bönnuð.
    • Aðgát skal höfð í meðförum elds.  Athugið að aldrei skal setja grill inn í tjald eða fortjald.  Þegar tjaldað er eða hjólhýsi/fellihýsi/húsbíll er staðsett á tjaldsvæðinu skulu ætíð vera a.m.k. 3 metrar á milli eininganna.
    • Brjóti félag/einstaklingur þessar reglur hefur mótshaldari heimild til að vísa viðkomandi af svæðinu.
    • Neyðarnúmer er 112
  • Eftir að hafa stundað íþróttir allan daginn er frábært tækifæri að taka fram dansskóna og skemmta sér á kvöldin með gömlum og nýjum vinum. Á tjaldsvæðinu verður að finna risastórt tjald þar sem flottir listamenn koma til með að halda uppi stuði og stemningu.

    Þeir sem koma fram eru m.a.: DJ Ísak & Ernir, Jón Jónsson, Sigga Ózk, hljómsveitin Meginstreymi, Björgvin frá IDOL og Júlí Heiðar.

  • Vakin er athygli á því að allir þátttakendur á Unglingalandsmóts UMFÍ eru á eigin ábyrgð. Nú er því rétti tíminn til að leita að tryggingaplagginu og fara yfir skilmálana áður en mætt er á mótið til að tryggja að allt sé eins og það á að vera.

  • Allir sem eru 11 - 18 ára á árinu geta skráð sig til keppni á mótinu. Þú þarft ekki að vera í íþrótta- eða ungmennafélagi til þess að geta tekið þátt, allir geta verið með.

    Fjöldi keppnisgreina er í boði og allir ættu því að finna keppnisgrein við sitt hæfi. Það er mikilvægt að keppendur taki þátt á sínum forsendum og hafi gleðina í fyrsta sæti.

    Vissulega hafa allar keppnisgreinarnar sínar reglur sem allir þurfa að virða og fara eftir. Keppendur geta tekið þátt í eins mörgum greinum og þeir treysta sér til. Mikilvægt er samt að skoða tímasetningar vel því einhverjar keppnisgreinar eru á sama tíma. Það er líka mjög mikilvægt að mæta til keppni ef búið er að skrá sig í ákveðna grein.

    Veitt eru verðlaun fyrir fyrstu þrjú sætin í öllum greinum, gull, silfur og brons.

  • Þjónustumiðstöð mótsins verður staðsett í Hjálmakletti/Menntaskólanum á fimmtudegi og föstudegi. Á laugardegi og sunnudegi verður hún hins vegar staðsett í grunnskólanum sem er beint fyrir ofan aðal íþróttasvæðið.

    Þjónustumiðstöðin er opin alla mótsdagana og þar er hægt að fá upplýsingar um allt er varðar mótið og mótahaldið. 

    Í þjónustumiðstöðinni fá keppendur afhent armbönd sem er forsenda fyrir þátttöku í keppninni. Án armbands getur enginn keppt. Yngri systkini geta einnig fengið armband.

    Ef armbandið slitnar á meðan mótinu stendur þá kemur þú með það í þjónustumiðstöðina og færð nýtt armband afhent.

  • Það skiptir okkur öllu máli að allir gestir okkar séu öruggir og að þeim líði vel. Fulltrúar úr Björgunarsveitum sjá um gæslu á svæðinu og gera sitt til að tryggja öryggi mótsgesta. Við erum aftur á móti öll Almannavarnir og því eru mótsgestir hvattir til þess að sýna náungakærleik og leiðbeina þeim sem misstíga sig í samskiptum eða framkomu við aðra.

    Við biðlum til allra ökumanna að keyra varlega, bæði á leiðinni á mótið og frá því og eins á mótssvæðinu sjálfu.

Skrá mig á Unglingalandsmót

Þátttökugjald er 9.400kr. Innifalið í því er þátttaka í öllum keppnisgreinum, viðburðum og tjaldsvæði mótsins.

Skrá mig til leiks!