Fara á efnissvæði

Öllum flokkum

Fréttir

Öllum flokkum

17. nóvember 2020

Ingvar hjá ÍBR: Við höfum áhyggjur af brottfalli úr íþróttum

Vísbendingar eru um að dregið hafi úr skráningum iðkenda í skipulögðu íþrótta- og tómstundastarfi. Formaður ÍBR mælir með því að þjálfarar íþróttafélaga þjálfi börn á skólatíma. „Við  hjá ÍBR höfum verulegar áhyggjur af ástandinu,“ segir Ingvar Sverrisson, formaður ÍBR.

17. nóvember 2020

Helgi hjá ÍBA: Dregið hefur úr skráningum iðkenda

„Ég fagna því að íþróttakennsla er að hefjast á ný. En ég hefði viljað sjá nemendur í framhaldsskólum geta byrjað að æfa aftur og hef áhyggjur af því að brottfall geti aukist, sérstaklega í þeim aldurshópi,“ segir Helgi Rúnar Bragason, framkvæmdastjóri ÍBA.

17. nóvember 2020

Börn beri ekki grímur á íþróttaæfingum

Skipulagt íþrótta-, æskulýðs- og tómstundastarf barna í leik- og grunnskólum verður heimilt á ný um allt land á morgun, miðvikudaginn 18. nóvember. Slakað verður á grímuskyldu yngstu barna og kennara þeirra. Sundlaugar eru enn lokaðar og íþróttir fullorðna liggja niðri.

15. nóvember 2020

Rætt um sameiningu íþróttahéraða á þingi UMSE

Ársþing UMSE var haldið á dögunum. Þetta var í fyrsta sinn sem það var haldið með rafrænum hætti. Að loknum hefðbundnum málum var rætt um endurskoðun á skiptingu íþróttahéraða. Innan UMSE er sameining talin geta gert starf héraðssambanda og íþróttahéraða skilvirka, að sögn formanns UMSE,

13. nóvember 2020

Börn og ungmenni fá að stunda íþróttir á nýjan leik í næstu viku

Íþrótta-, æskulýðs- og tómstundastarf barna í leik- og grunnskólum verður heimilt á ný bæði inni og úti miðvikudaginn 18. nóvember, samkvæmt breytingum á samkomutakmörkunum. Heilbrigðisráðherra hefur fallist á tillögur sóttvarnalæknis sem fela í sér varfærnar tilslakanir á gildandi takmörkunum.

13. nóvember 2020

Olga í Gerplu dansaði af kæti yfir afléttingu íþróttabanns

„Ég var svo rosalega glöð þegar ég heyrði fréttirnar í hádeginu að ég tók sigurhringinn,“ segir Olga Bjarnadóttir, framkvæmdastjóri Gerplu í Kópavogi. Hún segir mikilvægt að sjá hvað felst í reglugerð heilbrigðisráðherra svo hægt verði að skipuleggja íþróttastarfið í næstu viku.

11. nóvember 2020

Helgi Haraldsson: Börn og ungmenni geti stundað íþróttir við hæfi

Helgi S. Haraldsson, formaður frjálsíþróttadeildar UMF Selfoss og varaformaður HSK, segir framlínufólk í íþróttahreyfingunni óttast brottfall barna og ungmenna úr íþróttum vegna bágrar fjárhagslegrar stöðu foreldra iðkenda. Hann segir stjórnvöld kynna á næstu dögum aðgerðir fyrir tekjulága.

10. nóvember 2020

Mæður stofnuðu körfuboltadeild fyrir börnin

Lee Ann Maginnis mælir með því að stofna frekar nýja deild innan ungmennafélags en að stofna nýtt félag sem stendur utan við skipulagt starf. Hún og fleiri mæður hafa stofnað körfuknattleiksdeild fyrir börnin innan Umf Hvatar á Blönduósi. Stjórn deildarinnar er eingöngu skipuð konum.

10. nóvember 2020

Nýjasti Skinfaxi troðfullur af allskonar frábæru lesefni

Nýjasta tölublað Skinfaxa, tímarit UMFÍ, er komið alveg brakandi ferskt á Netið. Blaðið er eins og alltaf stútfullt af gríðarlega gagnlegu og góðu efni, ráðum fyrir stjórnendur og þjálfara í íþrótta- og ungmennafélagshreyfingunni, viðtölum við fólk og iðkendur og mörgu fleiru.