Fara á efnissvæði

Allar fréttir

Fréttir

Allar fréttir

04. október 2023

Við viljum vera meistarar í eigin lífi

„Við viljum verða meistarar í eigin lífi. Reynið því að ráða sem mestu í ykkar eigin lífi því þá mun ykkur ganga allt í haginn,“ sagði Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, við setningu Forvarnardagsins í dag.

04. október 2023

Forvarnardagurinn haldinn í 18. sinn í dag

Forvarnardagur 2023 er í dag. Á Forvarnardaginn er sjónum beint sérstaklega að ungmennum í 9. bekk grunnskóla og á fyrsta ári í framhaldsskóla. Skólar skrá sig til þátttöku og vinna verkefni Forvarnardagsins á tímabilinu 4.-20. október. 

02. október 2023

Opið fyrir umsóknir í þrjá sjóði

Við vekjum athygli á því að forsvarsfólk íþrótta- og ungmennafélaga hefur tækifæri til að senda inn umsóknir í þrjá sjóði. Það eru Fræðslu- og verkefnasjóður UMFÍ, Æskulýðssjóður og Íþróttasjóður.

24. september 2023

Vissu ekki hvað votlendi gerir mikið gagn

„Við höfðum aldrei heyrt áður af því hvað votlendið gerir og vissum ekki hvað það er mikilvægt fyrr en nú. Það þarf að stækka votlendið miklu meira,‟ segir Guðbjörg frá Hafnarfirði, sem var þátttakandi á ungmennaráðstefnunni Ungt fólk og lýðræði sem fram fór í húsnæði Skólabúðanna á Reykjum í Hrútafirði um helgina.

23. september 2023

Sævar Helgi: Þurfum að taka ákvarðanir með börnin okkar í huga

Sævari Helga Bragasyni jarðfræðingi bárust morðhótanir eftir að hann lagði til bann við almennri notkun á flugeldum út af reyk- og rykmengun, sóðaskapar á hávaðamengunum fyrir áramótin 2018. Sævar var með erindi og málstofu á ráðstefnunni Ungt fólk og lýðræði.

18. september 2023

Jarðbúar í veseni

„Við getum gert heiminn að betri stað. Fólk getur tileinkað sér prívatlausnir, hreyft sig meira og borðað öðruvísi mat,“ segir Sævar Helgi Bragason. Hann verður með erindi og málstofu um lausnir í loftlags- og umhverfismálum á ungmennaráðstefnunni Ungt fólk og lýðræði helgina 22. – 24. september. 

15. september 2023

Hvað veist þú um UMFÍ

Við hjá Ungmennafélagi Íslands (UMFÍ)  langar svo að kanna hvað sambandsaðilar UMFÍ og starfsfólks aðildarfélaga veit um starf UMFÍ og verkefnin og hvernig viðkomandi upplifir félagasamtökin. Með þessu viljum við geta boðið upp á framúrskarandi þjónustu fyrir sem flesta.

13. september 2023

Við leitum að liðsfélaga!

Í starfinu felst að sinna verkefnum varðandi fræðslumál, gerð alþjóðlegra styrkumsókna ásamt vinnu við samfélagsmiðla og önnur tilfallandi verkefni. Um er ræða 100% starf í 6 mánuði en þó er vonast til þess að hægt verði að gera það að fullu starfi til framtíðar.

11. september 2023

Umhverfis- og loftslagsmál í brennidepli á Ungu fólki og lýðræði

Ekki láta ungmennaráðstefnuna Ungt fólk og lýðræði fram hjá þér fara! Ráðstefnan fer fram dagana  22. – 24. september á Reykjum í Hrútafirði. Ráðstefnan er ætluð ungu fólki frá 16 - 25 ára og er aðalumræðuefnið umhverfis- og loftlagsmál.