Fara á efnissvæði

Allar fréttir

Fréttir

Allar fréttir

22. maí 2020

Fjöldatakmarkanir víkkaðar úr 50 manns í 200

Mánudaginn 25. maí verður allt að 200 manns heimilt að koma saman í stað 50 nú, heimilt verður að opna íþróttamannvirki og líkamsræktarstöðvar með sömu takmörkunum og gilda um sund- og baðstaði og aðra staði. Í minnisblaði sóttvarnalæknis er lagt til að engar takmarkanir verði á íþróttastarfi.

19. maí 2020

ÍSÍ greiðir um 300 milljónir til íþrótta- og ungmennafélaga

ÍSÍ hefur greitt til íþrótta- og ungmennafélaga tæplega 300 milljónir króna af 450 milljóna króna framlagi ríkisins til íþróttahreyfingarinnar vegna áhrifa af völdum Covid-19. Annars vegar er um að ræða almenna aðgerð og hins vegar sértæka aðgerð.

18. maí 2020

Nú styttist heldur betur í Hreyfiviku UMFÍ

Nú styttist heldur betur í stuðið, vorboðann ljúfa. Hreyfivika UMFÍ hefst 25. maí næstkomandi og stendur hún til 31. maí. Boðberar hreyfingar í Hreyfiviku UMFÍ eru byrjaðir að undirbúa allskonar viðburði og leiki um allt land og má því búast við gríðarlegu sprikli í vikunni.

14. maí 2020

Komdu í ungmennaráð heimsmarkmiða Sameinuðu þjóðanna

Viltu vera í ungmennaráði heimsmarkmiða Sameinuðu þjóðanna eða veistu um einhvern eða einhverja á aldrinum 13-18 ára sem ættu svo sannarlega að sitja þar? Nú er tækifærið því opnað hefur verið fyrir umsóknir í ungmennaráðið.

14. maí 2020

Jóhann tekur við af Erni í stjórn Íslenskrar getspár

Jóhann Steinar Ingimundarson tók sæti í stjórn Íslenskrar getspár á aðalfundi félagsins sem haldinn var á Grand hótel í gær. Jóhann tekur við sætinu af Erni Guðnasyni, fyrrverandi varaformanni UMFÍ.

13. maí 2020

Einfaldara en áður að tilkynna um óæskilega hegðun

Ný vefsíða Æskulýðsvettvangsins er komin í loftið. Þar er hægt að nálgast upplýsingar um verkefni, verkfæri og úrræði samtakanna á auðveldan hátt og panta námskeið. „ Núna er mun auðveldara fyrir þolendur og aðra sem vilja tilkynna óæskilega hegðun til fagráðsins,“ segir Sema Erla Serdar.

12. maí 2020

Þið munið öll brennó!

Nú styttist aldeilis í stuðið. Vorboðinn góði, Hreyfivika UMFÍ hefst 25. maí næstkomandi og stendur hún til 31. maí. Boðberar hreyfingar eru byrjaðir að undirbúa Hreyfivikuna um allt land, bæði í grunnskólum  landsins, hjá sambandsaðilum UMFÍ og fyrirtækjum.

11. maí 2020

Íþróttafélag fyrir fólk sem hefur gaman af því að hreyfa sig og hitta aðra

„Ég er mjög þakklátur fyrir þennan mikla heiður sem er til marks um að maður sé að gera eitthvað rétt,” segir Algirdas Slapikas, formaður íþróttafélagsins Stál-úlfs. Á síðasta ársþingi UMSK í vor fékk Algirdas starfsmerki UMFÍ. Hér ræðir hann um íþróttafélagið Stál-úlf og tilurð þess.

08. maí 2020

Fræðslu- og verkefnasjóður úthlutar 8,3 milljónum

Fræðslu- og verkefnasjóður UMFÍ hefur úthlutað rétt tæpum 8,3 milljónum króna til 135 verkefna. Ljóst er að eftirspurnin eftir styrkjum úr sjóðnum er umtalsverð en 199 umsóknir bárust í sjóðinn upp á tæpar 50 milljónir króna.