Allar fréttir
![](/media/o1udhax4/49122070781_7df866e7f7_c.jpg?width=530&height=350&v=1d9a9d0ca19f210 1x)
28. apríl 2020
UMFÍ frestar tveimur mótum
Stjórn UMFÍ hefur ákveðið að fresta Landsmóti UMFÍ 50+ og Íþróttaveislu UMFÍ sem halda átti í sumar. Nýjar dagsetningar verða tilkynntar um leið og þær liggja fyrir. Ómar Bragi Stefánsson, framkvæmdastjóri móta UMFÍ, segir nauðsynlegt að fresta báðum mótunum til að tryggja öryggi þátttakenda.
![](/media/cqufib4c/laugar1.jpg?width=530&height=350&v=1d9a9d0c6a47a60 1x)
27. apríl 2020
Starf Ungmennabúða UMFÍ á fullt skrið 4. maí
Starfsemi Ungmennabúða UMFÍ fer á fullt skrið þegar samkomubanni verður létt af skólastarfi 4. maí næstkomandi. UMFÍ átt í góðum samskiptum við yfirvöld og fundað með sóttvarnalækni og heilbrigðisyfirvöldum og er staðfest að starfsemi Ungmennabúða getur farið fram með eðlilegum hætti.
![](/media/d4rfeyvy/tbr.jpg?width=530&height=350&v=1d9a9d0bf903110 1x)
21. apríl 2020
Sigfús hjá TBR: Gefum öllum kost á aukaæfingum fram á sumarið
„Ég reikna með að flestir verði komnir með talsverða hreyfiþörf þegar við opnum aftur,“ segir Sigfús Ægir Árnason, framkvæmdastjóri Tennis- og badmintonfélags Reykjavíkur (TBR). Nokkrir stjórnendur í íþróttahreyfingunni voru spurðir út í samkomubannið og hvað tekur við. Svörin eru í Skinfaxa.
![](/media/s4ejbbp2/1ulm18-64.jpg?width=530&height=350&v=1d9a9d0c3022650 1x)
21. apríl 2020
Íþróttastarfið aftur í gang 4. maí
Íþróttastarf um 70.000 grunnskólabarna fer aftur í gang 4. maí. Fullorðnir geta farið á æfingar en þurfa að lúta skilyrðum, samkvæmt breytinga á samkomubanni sem heilbrigðisráðherra birti í dag. „Þetta er framar okkar vonum,“ segir Auður Inga Þorsteinsdóttir, framkvæmdastjóri UMFÍ.
![](/media/z2nds1sa/gissur-jonsson_5020-2.jpg?width=530&height=350&v=1d9a9d0b891e0c0 1x)
20. apríl 2020
Starf skerðist hjá nærri öllu starfsfólki
Um fjórðungur starfsfólks Ungmennafélags Selfoss fer á hlutagreiðslur. Þjálfararnir eru hugmyndaríkir og halda iðkendum virkum með æfingum sem þeir fá með ýmsum hætti, segir Gissur Jónsson, framkvæmdastjóri félagsins.
![](/media/zpwjkskx/on_line_heimsmet.jpg?width=530&height=350&v=1d9a9d0bc182150 1x)
20. apríl 2020
Fólk getur slegið heimsmet heima hjá sér
Miðvikudaginn 22.apríl klukkan 12:30 geta börn á Íslandi tekið þátt í því að slá heimsmet með börnum um allan heim. Viðburðurinn er haldinn af systursamtökum UMFÍ í Póllandi sem heita V4sport og í samstarfi við ISCA (International Sport and Culture Association) sem UMFÍ er aðili að.
![](/media/anrld3g4/klara_umss_2.jpg?width=530&height=350&v=1d9a9d0b4e0e6b0 1x)
17. apríl 2020
UMSS er 110 ára í dag
„Þetta eru skrýtnir tímar. Við ætluðum að hafa veglegt ársþing í apríl, bjóða upp á þriggja rétta veislu með ljúffengu kjöti úr Skagafirði fyrir hátt í 90 manns, þingfulltrúa, gesti og fleiri. Þetta átti að vera stórt þing, það hundraðasta að viðbættu afmælinu. En ætli við gerum nokkuð fyrr en í hau
![](/media/casl1ksv/50-participant-gallery-view-example.png?width=530&height=350&v=1d9a9d0b15994b0 1x)
16. apríl 2020
Breyttir tímar kalla á fjarfundi
Félagasamtök, fyrirtæki og stofnanir um heim allan hvetja nú starfsfólk sitt til þess að breyta vinnuhögum sínum og vinna til skiptis á skrifstofu og heima hjá sér til að hindra frekari útbreiðslu kórónaveirunnar sem veldur COVID-19.
![](/media/c5tnr52j/vigdisfinnbogadottir.jpg?width=530&height=350&v=1d9a9d0ade49230 1x)
15. apríl 2020
Vigdís Finnbogadóttir 90 ára
Afmælisbarn dagsins er tvímælalaust Vigdís Finnbogadóttir, fyrrverandi forseti Íslands. Hún fagnar í dag 90 ára afmæli. Vigdís hefur ávallt verið dyggur stuðningsmaður UMFÍ og heiðraði í forsetatíð sinni landsmót UMFÍ. UMFÍ óskar henni til hamingju með daginn.