Fara á efnissvæði

Allar fréttir

Fréttir

Allar fréttir

19. desember 2018

Jólagjöfin er á leiðinni til þín

Það er einskær gleði sem fylgir jólalestinni þetta árið. Stjórn UMFÍ hefur nefnilega ákveðið að greiða út til sambandsaðila sérstaka aukaúthlutun upp á 16 milljónir króna sem barst frá Íslenskri getspá.

12. desember 2018

Landsmótið verður aftur í júlí 2020

Stjórn UMFÍ hefur ákveðið að Landsmótið verði haldið á nýjan leik í júlí árið 2020. Það felur í sér að í upphafi árs 2019 verður skipuð nefnd sem mun hefja undirbúning Landsmótsins. Mikil ánægja var með mótið sem haldið var á Sauðárkróki í sumar.

10. desember 2018

Langar þig í lýðháskóla?

Langar þig í lýðháskóla? UMFÍ veitir þeim styrki sem langar til að sjóndeildarhring sinn og prófa eitthvað alveg nýtt og spennandi. Umsóknarfrestur til að sækja um styrk stendur út næsta mánuðinn en hann rennur út 10. janúar 2019. Tómas tónlistarmaður er einn þeirra sem skellti sér í lýðháskóla.

07. desember 2018

Kvitta undir Unglingalandsmót UMFÍ á Höfn í Hornafirði 2019

Unglingalandsmót UMFÍ verður haldið á Höfn í Hornafirði um verslunarmannahelgina 2019. Matthildur Ásmundardóttir, bæjarstjóri á Höfn í Hornafirði, Haukur Valtýsson, formaður UMFÍ, og Jóhanna Íris Ingólfsdóttir, formaður USÚ, skrifuðu undir samstarfssamning þess efnis í dag.

04. desember 2018

Hvar verður Unglingalandsmót UMFÍ 2021 og 2022?

Ungmennafélag Íslands (UMFÍ) minnir á að sambandsaðilar UMFÍ hafa frest til 10. desember næstkomandi til að senda inn umsóknir um að taka að sér og halda 24. Unglingalandsmót UMFÍ 2021 og 25. Unglingalandsmóts UMFÍ 2022.

03. desember 2018

Funduðu um Landsmót UMFÍ 50+ í Neskaupstað

Nefnd um framkvæmd Landmóts UMFÍ 50+ fundaði á miðvikudag í síðustu viku um mótið í félagshúsi Þróttar í Mýrinni í Neskaupstað. Þetta var fyrsti fundur nefndarinnar.

01. desember 2018

Til hamingju með daginn íslenska þjóð

Í dag fagnar Ísland 100 ára afmæli fullveldisins en á þessum degi árið 1918 tóku í gildi sambandslögin svokölluðu sem kváðu á um viðurkenningu Danmerkur á Íslandi sem fullvalda og frjálsu ríki. UMFÍ óskar landsmönnum til hamingju með daginn.

30. nóvember 2018

Nýtt tölublað Skinfaxa: Mikilvægt að kynna erlendu fólki íþróttir á eigin tungumáli

„Það er best að ná til barnanna í gegnum skólana, jafnvel strax í leikskóla, þar sem innflytjendur/nýbúar vita ekki alltaf hvernig íþrótta- og tómstundastarf virkar,“ segir knattspyrnukonan Fjolla Shala. Rætt er við hana og körfuknattleiksmanninn Maciej Baginski í nýjasta tölublaði Skinfaxa.

28. nóvember 2018

Fjölnishöllin vígð í Grafarvogi

Nýtt íþróttahús Fjölnis var vígt í Egilshöll í Grafarvogi í gær. Félagið fagnar 30 ára afmæli um þessar mundir. Jón Karl Ólafsson, formaður Fjölnis, sagði við vígsluna stofnendur Fjölnis ekki hafa getað ímyndað sér hvað féalgið myndi stækka. Nú sé það orðið að stórveldi.