Allar fréttir
![](/media/g35f3rag/20225187562_3643e11a6a_o-2.jpg?width=530&height=350&v=1d9a9c9856b6970 1x)
08. nóvember 2017
8. nóvember er Dagurinn gegn einelti
Dagurinn gegn einelti er í dag, miðvikudaginn 8. nóvember. Þetta er sjöunda árið sem dagurinn er helgaður baráttunni gegn einelti. UMFÍ leggur sitt af mörkum til að bæta samfélagið með jákvæðum samskiptum.
![](/media/tifdn5q5/27264416423_1ba90295c1_z.jpg?width=530&height=350&v=1d9a9c988e80d10 1x)
08. nóvember 2017
Einar Haraldsson: Gott að vita af Æskulýðsvettvanginum
„Það skipti máli fyrir okkur í íþróttahreyfingunni að vita hvert við getum leitað þegar upp kemur vandamál eins og einelti. Það er frábært að UMFÍ hafi farveg eins og Æskulýðsvettvanginn fyrir okkur til að leita til,“ segir Einar Haraldsson hjá Keflavík, íþrótta- og ungmennafélagi.
![](/media/v4cnrwxl/download.png?width=530&height=350&v=1d9a9c97dcedd50 1x)
06. nóvember 2017
Hvar ert þú á samfélagsmiðlum?
Ert þú á aldrinum 12 - 25 ára og notar samfélagsmiðla? Ef svo er þá þætti okkur hjá UMFÍ ákaflega gott ef þú gætir gefið þér um 5 mínútur til þess að svara suttri könnun um notkun samskiptamiðla.
![](/media/laym2fu1/20171104_122659.jpg?width=530&height=350&v=1d9a9c981bbcef0 1x)
06. nóvember 2017
Kjarni ungmennafélagsandans á vel við í íþróttum
„Ungmennafélög geta bætt siðferði í íþróttum,“ segir Haukur Valtýsson, formaður UMFÍ. Hann var í pallborði á ráðstefnunni Ríkir gott siðferði í íþróttum? sem haldin var í Háskóla Íslands á laugardag, 4. nóvember. Sabína Steinunn Halldórsdóttir fjallaði þar líka um verkefnið Sýnum karakter.
![](/media/dugax2cm/1e1a7237.jpg?width=530&height=350&v=1d9a9c976beb2b0 1x)
03. nóvember 2017
Stjórn UMFÍ skiptir með sér verkum
Ný stjórn UMFÍ hefur skipt með sér verkum. Haukur Valtýsson er formaður og Örn Guðnason varaformaður. Guðmundur Sigurbergsson er gjaldkeri, Hrönn Jónsdóttir ritari og Jóhann Steinar Ingimundarson formaður framkvæmdastjórnar UMFÍ.
![](/media/dtkbixms/20171102_201257.jpg?width=530&height=350&v=1d9a9c97a4f2c70 1x)
03. nóvember 2017
Mikill áhugi á námi í lýðháskóla
Rúmlega 50 ungmenni sem áhuga hafa á námi í lýðháskólum mættu á kynningu á danska skólanum Nordjyllands Idrætshøjskole (NHI) sem fram fór í þjónustumiðstöð UMFÍ í gærkvöldi, fimmtudagskvöldið 2. nóvember.
![](/media/hcmekw0e/asdis-sigurdardottir.jpg?width=530&height=350&v=1d9a9c972d7b480 1x)
02. nóvember 2017
Ásdís er nýr framkvæmdastjóri Ungmennasambands Eyjafjarðar
„Ég er mjög spennt fyrir því að vera komin hinum megin við borðið. Ég hef nefnilega alltaf verið þjálfaramegin,“ segir Ásdís Sigurðardóttir. Hún tók í gær (1. nóvember) við starfi framkvæmdastjóra Ungmennasambands Eyjafjarðar (UMSE). Hún tekur við starfinu af Þorsteini Marinóssyni.
![](/media/knrm52xt/14971495_10157655334470035_1816723488_o.jpg?width=530&height=350&v=1d9a9c96f67bb10 1x)
01. nóvember 2017
Komdu og kynntu þér danskan lýðháskóla
Langar þig í lýðháskóla eða hefurðu heyrt af því hvað það er gaman að fara í lýðháskóla? Kynning er á Nordjyllands Idrætshøjskole í þjónustumiðstöð UMFÍ fimmtudaginn 2. nóvember frá klukkan 20:00 - 21:30.
![](/media/jzenepku/hreyfivika.jpg?width=530&height=350&v=1d9a9c96bef3620 1x)
30. október 2017
Ekki missa af Lýðheilsusjóði
Nú fer hver að verða síðastur til þess að sækja um styrk í Lýðheilsusjóð. Opið hefur verið fyrir umsóknir í sjóðinn um nokkurt skeið og verður lokað fyrir ferlið 1. nóvember næstkomandi. Það eru því eftir aðeins rétt tæpir tveir dagar til að sækja um styrki í sjóðinn.