Allar fréttir
![](/media/phqjtfqf/mynd-oskar-thordar-nyr-formadur.jpg?width=530&height=350&v=1d9a9d8f30a2a20 1x)
02. júní 2023
Óskar endurkjörinn formaður UÍF
Óskar Þórðarson var endurkjörinn formaður Ungmenna- og íþróttasambands Fjallabyggðar (UÍF) á ársþingi sambandsins sem haldinn var á Ólafsfirði á miðvikudag. Ágætlega var mætt á þingið eða 22 þingfulltrúar af 31. Haukur Valtýsson, fyrrverandi formaður UMFÍ, var gestur þingsins fyrir hönd UMFÍ.
![](/media/mbrndbue/ulm2019_sund_1.jpg?width=530&height=350&v=1d9a9d8f688c990 1x)
02. júní 2023
Skil á starfsskýrslum lengd til 15. júní
„Skýrsluskil eru aðeins hægari nú en í fyrra. Það skýrist líklega af því að ekki hafa öll félög haldið aðalfundi og ársreikningar ekki tilbúnir,“ segir Elías Atlason, umsjónarmaður með starfsskýrsluskilum íþróttahéraða og íþróttafélaga þar undir. Skil á skýrslum eru til 15. júní.
![](/media/4q1bnnxk/gudrun_11.png?width=530&height=350&v=1d9a9d8eb98ccb0 1x)
01. júní 2023
Guðrún og fjölskylda er spennt fyrir landsmótinu
„Við erum mjög spennt fyrir mótinu í bænum. Hér verður fullt af fólki í bænum og mikið í boði, bæði viðburðirnir í kringum Landsmót UMFÍ 50+ og Danska daga,“ segir Guðrún Björg Guðjónsdóttir, íbúi í Stykkishólmi.
![](/media/2pvdicu3/1e1a1322.jpg?width=530&height=350&v=1d9a9d8ef687250 1x)
01. júní 2023
Aðalfundur Æskulýðsvettvangsins
Aðalfundur Æskulýðsvettvangsins fór fram í dag. Þetta var hefðbundinn fundur sem haldinn var í húsnæði KFUM og KFUK við Holtaveg í Reykjavík. Tómas Ingi Torfason, framkvæmdastjóri félagasamtakanna og formaður Æskulýðsvettvangsins, bauð gesti velkomna.
![](/media/t3okljyb/_o2a2699_2.jpg?width=530&height=350&v=1d9a9d8e8003ca0 1x)
31. maí 2023
Opið fyrir skráningu á Landsmót UMFÍ 50+ í Stykkishólmi
Nú er hægt að skrá sig á Landsmót UMFÍ 50+ sem fram fer í Stykkishólmi dagana 23. – 25. júní. Kerfið er mjög einfalt og þægilegt í notkun og er vel mögulegt að þátttakendur fyrri móta kannist við það. Þátttakendur geta skráð sig í fjölda greina allt frá frjálsum íþróttum til pílukasts og frisbígolf.
![](/media/flsdzfsw/1e1a1189.jpg?width=530&height=350&v=1d9a9d8e43be1a0 1x)
25. maí 2023
Ásmundur Einar skoðar nýja þjónustumiðstöð UMFÍ
Ásmundur Einar Daðason, mennta- og barnamálaráðherra, kíkti í heimsókn í nýja þjónustumiðstöð UMFÍ í dag og ásamt fleirum úr ráðuneytinu. Ráðherra skoðaði íþróttamiðstöðina og ræddi við hluta af stjórn og starfsfólk um ýmislegt tengt íþrótta- og æskulýðsstarfi.
![](/media/qx1fxgbu/347089046_802075101339217_962714553395897884_n.jpg?width=530&height=350&v=1d9a9d8e0705ab0 1x)
16. maí 2023
Hrafnkell endurkjörinn formaður ÍBH
Þing Íþróttabandalags Hafnarfjarðar (ÍBH) var haldið fimmtudaginn 11. maí síðastliðinni í safnaðarheimili Hafnarfjarðarkirkju. Á þingið mættu 68 fulltrúar aðildarfélaga bandalagsins auk gesta. Þar á meðal var Jóhann Steinar Ingimundarson, formaður UMFÍ, sem mætti á þingið í fyrsta sinn.
![](/media/vwed0tpo/1e1a1237.jpg?width=530&height=350&v=1d9a9d8dcd8dc10 1x)
11. maí 2023
Svona verður Landsmót UMFÍ 50+ í Stykkishólmi
Nú er aldeilis farið að styttast í Landsmót UMFÍ 50+ sem fer fram í Stykkishólmi dagana 23. – 25. júní. Þótt mótið er hugsað fyrir þátttakendur sem verða 50 ára á árinu og alla eldri þá geta 18 ára og eldri líka tekið þátt í gleðinni.
![](/media/5v2bxxmf/_mg_2953.jpg?width=530&height=350&v=1d9a9d8d9167ce0 1x)
10. maí 2023
Bandaríkjamenn forvitnir um tengsl íþrótta og forvarna
Fjölmennur hópur fólks frá Bandaríkjunum kom í heimsókn í Íþróttamiðstöðina í Laugardal til að fræðast um íslenska forvarnarmódelið og starf í þróttafélaga í forvarnarvinnunni. Ragnhildur Skúladóttir frá ÍSÍ og Auður Inga Þorsteinsdóttir frá UMFÍ fræddu gestina um skipulag íþróttahreyfingarinnar.