Allar fréttir
12. apríl 2020
Nýtt tölublað Skinfaxa komið út
Nýjasta tölublað Skinfaxa, tímarit UMFÍ, er komið út. Þetta er fyrsta tölublað ársins. Blaðið einkennist af fordæmalausum tímum, heimsfaraldri, ferðalagi innanhúss og aðdáunarverðu starfi stjórnenda í íþróttahreyfingunni við aðstæður sem enginn hefur áður upplifað.
06. apríl 2020
Lokað í Ungmennabúðum UMFÍ vegna samkomubanns
Lokað er í Ungmennabúðum UMFÍ nú á meðan samkomubann varir til að hefta mögulega útbreiðslu kórónaveirunnar. Af þeim sökum eru þar engir nemendur á meðan samkomubann er í gildi.
03. apríl 2020
Willum: Mikilvægt að verja íþróttastarfið
„Íþróttahreyfingin er í erfiðri stöðu eins og fjölmargir aðrir við þessar aðstæður og mikilvægt að verja starfið þar og störfin innan hennar. Við hugum að því með öllum ráðum,“ segir Willum Þór Þórsson, formaður fjárlaganefndar Alþingis. Hann hvetur félögin til að nýta sér hlutagreiðsluleiðina.
03. apríl 2020
Tilmæli varðandi fyrirspurn um endurgreiðslu æfingagjalda
Í ljósi fordæmalausra aðstæðna af völdum kórónafaraldursins, takmarkana á skólahaldi og samkomubanns sem veldur því að íþróttastarf liggur niðri hafa vaknað spurningar um endurgreiðslu æfingagjalda íþróttafélaga. ÍSÍ og UMFÍ hafa leitað ráðgjafar varðandi endurgreiðslu æfingagjalda.
02. apríl 2020
Kristrún er nýr framkvæmdastjóri Aftureldingar
Kristrún Kristjánsdóttir hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Ungmennafélagsins Aftureldingar í stað Jóns Júlíusar Karlssonar sem mun í sumar taka við starfi framkvæmdastjóra Ungmennafélags Grindavíkur.
31. mars 2020
Munið að sækja um í sjóðum UMFÍ
Vakin er athygli á að nú styttist aldeilis í að frestur til að sækja um í tveimur sjóðum UMFÍ rennur út. Frestur til að sækja um í Fræðslu- og verkefnasjóð UMFÍ rennur út á morgun, 1. apríl. Enn er hægt að senda inn umsóknir í Umhverfissjóð UMFÍ en frestur til þess rennur út 15. apríl næstkomandi.
27. mars 2020
Við eigum öll að hlýða Víði!
„Við höfum fengið vísbendingar um að íþróttafólk félaga sé að stunda íþróttaæfingar úti þrátt fyrir strangt samkomubann. Það er ekki til fyrirmyndar. segir Auður Inga Þorsteinsdóttir, framkvæmdastjóri UMFÍ.
26. mars 2020
Jónas hjá Völsungi: Íþróttafélögin haldi iðkendum virkum
„Mikilvægasta hlutverk okkar er að halda iðkendum við efnið og í starfinu,“ segir Jónas Halldór Friðriksson, framkvæmdastjóri Völsungs á Húsavík. Félagið hefur fellt niður 100 skipulagðar æfingar í viku og hefur það áhrif á 600 iðkendur í skipulögðu starfi. Hann segir mikilvægt að halda áfram.
23. mars 2020
Formaður UMFÍ: Hlúum hvert að öðru og gætum þess að öðrum líði vel
„Óvissan er vissulega mikil. En við munum ná árangri þegar við erum samtaka. Um leið getum við látið okkur hlakka til að mæta aftur til leiks hjá félögum okkar um allt land þegar birtir til. Það er ungmennafélagsandinn,“ skrifar Haukur Valtýsson, formaður UMFÍ til félagsmanna.