Öllum flokkum

12. maí 2020
Þið munið öll brennó!
Nú styttist aldeilis í stuðið. Vorboðinn góði, Hreyfivika UMFÍ hefst 25. maí næstkomandi og stendur hún til 31. maí. Boðberar hreyfingar eru byrjaðir að undirbúa Hreyfivikuna um allt land, bæði í grunnskólum landsins, hjá sambandsaðilum UMFÍ og fyrirtækjum.

11. maí 2020
Íþróttafélag fyrir fólk sem hefur gaman af því að hreyfa sig og hitta aðra
„Ég er mjög þakklátur fyrir þennan mikla heiður sem er til marks um að maður sé að gera eitthvað rétt,” segir Algirdas Slapikas, formaður íþróttafélagsins Stál-úlfs. Á síðasta ársþingi UMSK í vor fékk Algirdas starfsmerki UMFÍ. Hér ræðir hann um íþróttafélagið Stál-úlf og tilurð þess.

08. maí 2020
Fræðslu- og verkefnasjóður úthlutar 8,3 milljónum
Fræðslu- og verkefnasjóður UMFÍ hefur úthlutað rétt tæpum 8,3 milljónum króna til 135 verkefna. Ljóst er að eftirspurnin eftir styrkjum úr sjóðnum er umtalsverð en 199 umsóknir bárust í sjóðinn upp á tæpar 50 milljónir króna.

04. maí 2020
Lærðu mikið af því að vinna með ungmennum
Margrét og María dvöldu í tvær vikur í Ungmennabúðum UMFÍ á Laugarvatni, í verknámi sínu í tómstunda- og félagsmálafræðum. „Mig langaði í skemmtilegt vettvangsnám þar sem ég hefði nóg að gera í stað þess að sitja við tölvu allan daginn,“ segir Margrét. Starfsemi búðanna er að komast í gang á ný.

02. maí 2020
Eysteinn, Líney og Pálmar ræða íþróttastarfið
Samkomubanni verður aflétt að hluta á íþróttaiðkun barna og ungmenna á mánudag, 4. maí. Líney Rut Halldórsdóttir, framkvæmdastjóri ÍSÍ, Eysteinn Pétur Lárusson frá Breiðabliki og Pálmar Ragnarsson, fyrirlesari og þjálfari hjá Val, ræddu um íþróttastarfið á fundi Almannavarna í dag.

30. apríl 2020
Nemendur mála gamla Sindrahúsið í samkomubanni
„Okkur langaði að gera eitthvað sameiginlegt fyrir nemendurnar, svo þeir gætu hist. Samfélagslegt verkefni eins og útilistaverk. Við fengum leyfi hjá verktakanum að nýta gamla Sindrahúsið í samkomubanninu og mála það,“ segir Eyjólfur, skólameistari Framhaldsskólans í Austur-Skaftafellssýslu.

28. apríl 2020
UMFÍ frestar tveimur mótum
Stjórn UMFÍ hefur ákveðið að fresta Landsmóti UMFÍ 50+ og Íþróttaveislu UMFÍ sem halda átti í sumar. Nýjar dagsetningar verða tilkynntar um leið og þær liggja fyrir. Ómar Bragi Stefánsson, framkvæmdastjóri móta UMFÍ, segir nauðsynlegt að fresta báðum mótunum til að tryggja öryggi þátttakenda.

27. apríl 2020
Starf Ungmennabúða UMFÍ á fullt skrið 4. maí
Starfsemi Ungmennabúða UMFÍ fer á fullt skrið þegar samkomubanni verður létt af skólastarfi 4. maí næstkomandi. UMFÍ átt í góðum samskiptum við yfirvöld og fundað með sóttvarnalækni og heilbrigðisyfirvöldum og er staðfest að starfsemi Ungmennabúða getur farið fram með eðlilegum hætti.

21. apríl 2020
Sigfús hjá TBR: Gefum öllum kost á aukaæfingum fram á sumarið
„Ég reikna með að flestir verði komnir með talsverða hreyfiþörf þegar við opnum aftur,“ segir Sigfús Ægir Árnason, framkvæmdastjóri Tennis- og badmintonfélags Reykjavíkur (TBR). Nokkrir stjórnendur í íþróttahreyfingunni voru spurðir út í samkomubannið og hvað tekur við. Svörin eru í Skinfaxa.