Fara á efnissvæði

Allar fréttir

Fréttir

Allar fréttir

01. október 2019

Sigurður frá UMSB með erindi á ráðstefnu Sýnum karakter

„Ég held að verkfærakista Sýnum karakter skili okkur betra fólki út í samfélagið. Ef vel tekst til fá krakkarnir betra sjálfstraust í íþróttum og læra að vinna með það,“ segir Sigurður Guðmundsson, framkvæmdastjóri UMSB. Hann verður með erindi um innleiðinguna á ráðstefnu Sýnum karakter á laugardag.

30. september 2019

Kynning á Forvarnardeginum 2019

Blaðamannafundur var haldinn í Fellaskóla í dag í tilefni af Forvarnardeginum 2019 sem haldinn verður í flest­um grunn- og fram­halds­skól­um lands­ins á miðviku­dag. Á fundinn í dag mættu Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, Dagur B. Eggertsson borgarstjóri, Alma D. Möller landlæknir og fleiri.

24. september 2019

Hvernig getur keppnisfyrirkomulag mótað eða eyðilagt karakter?

Fjölmiðlakonan Jóhanna Vigdís Hjaltadóttir mun fjalla um mikilvægi íþrótta fatlaðra fyrir sjálfsmyndina á ráðstefnu Sýnum karakter laugardaginn 5. október næstkomandi. Ráðstefnan heitir: Hvernig getur keppnisfyrirkomulag mótað eða eyðilagt karakter? Smelltu hér, skoðaðu dagskránna og skráðu þig.

23. september 2019

Starf framkvæmdastjóra HSV laust til umsóknar

Stjórn Héraðssambands Vestfirðinga auglýsir starf framkvæmdastjóra HSV laust til umsóknar. HSV er með starfssvæði í Ísafjarðarbæ og Súðavíkurhreppi og hefur 16 aðildarfélög innan sinna vébanda. Umsóknarfrestur er til og með 14. október.

19. september 2019

Netnámskeið Æskulýðsvettvangsins er nýjung í barnaverndarmálum á Íslandi

Æskulýðsvettvangurinn ásamt hópi fagaðila í barnaverndarmálum hefur búið til netnámskeið fyrir fólk sem starfar með börnum og ungmennum í íþrótta- og æskulýðssstarfi. Námskeiðið er ókeypis og opið fyrir alla sem vinna að barnaverndarmálum með einum eða öðrum hætti.

09. september 2019

Styrkir til ungmenna

UMFÍ veitir ungu fólki sem hyggur á nám við lýðháskóla í Danmörku styrk fyrir námsárið 2019 - 2020.

03. september 2019

Fyrsti hópur nemenda kominn í Ungmennabúðirnar

„Við erum öll ótrúlega ánægð. Nemendurnir eru jákvæðir og kátir og þeim líður afskaplega vel,“ segir Júlía Guðmundsdóttir kennari við Vættaskóla í Grafarvogi. Nemendur í 9. bekk skólans voru þeir fyrstu sem komu í endurbættar Ungmenna- og tómstundabúðir UMFÍ að Laugarvatni í vikunni.

02. september 2019

Vilt þú hafa áhrif á annað ungt fólk?

Ungmennaráð UMFÍ auglýsir eftir ungu fólki á aldrinum 16 - 25 ára til starfa í ráðið.

26. ágúst 2019

Breytt fyrirkomulag í keppni

Dagana 3. - 4. október fer fram vinnustofa í tengslum við verkefnið Sýndu karakter. Yfirskrift vinnustofunnar er Keppni með tilgang. Laugardaginn 5. október fer síðan fjórða Sýnum karakter ráðstefnan fram.